Krókaleið um Julius Eastman - Seigla

Krókaleið um Julius Eastman - Seigla

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

lau. 08.08.2026 18:00

Bandaríska tónskáldið Julius Eastman hefur vakið verðskuldaða athygli á undanförnum árum. Tilraunakennd og ögrandi tónlist hans byggir að miklu leyti á persónulegri upplifun hans af fordómum gegn svörtu og hinsegin fólki.
Flest verk hans eru skrifuð fyrir opna eða sveigjanlega hljóðfæraskipan, sem þýðir að nákvæm samsetning flytjenda og hljóðfæra getur breyst eftir því hverjir taka þátt í flutningnum. Í stað hefðbundinnar nótnaritunar, er tónlistin byggð á endurteknum mótífum sem umbreytast hægt í gegnum spuna. Þetta myndar marglaga form þar sem flytjendur flakka á milli hlutverka, endurtaka tónefni að vild og geta með þeim hætti mótað heildarbyggingu verksins í sameiningu á meðan flutningi stendur.
Á tónleikunum mun kammersveitin Elja einnig frumflytja nýtt verk eftir Pétur Eggertsson sem ber nafnið Krókaleið. Pétur, sem er undir miklum áhrifum frá tilraunakenndri tónlist Julius Eastman, vinnur í gegnum sjónlistir og gjörninga. Umbreyting hljóðs í gegnum handahófskenndar þýðingar í mismunandi miðla er í brennidepli í verkum hans, auk þess sem hlutverk áhorfenda er kannað og aukið.

UM FLYTJENDUR:
Elja samanstendur af ungu íslensku klassísku tónlistarfólki. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa stundað nám saman á Íslandi áður en haldið var erlendis, og starfa þau nú flest sem einleikarar eða hljómsveitarspilarar á Íslandi og víða um heim. Frá stofnun kammersveitarinnar árið 2017 hefur hún skipað sér í sess meðal fremstu kammersveita landsins og hefur vakið athygli fyrir líflegan og ferskan flutning. Elja hefur á þessum árum komið reglulega fram og stærstu tónleikarnir eru yfirleitt haldnir bæði á sumrin og um áramót ásamt smærri kammertónleikum á haust- og vorönn. Tónleikahúsnæðin hafa verið fjölbreytt og þar má nefna Hörpu, Gamla Bíó, Hof, Gömlu kartöflugeymslurnar, Iðnó, Tjarnarbíó og Miklagarð í Varmahlíð. Elja hefur hlotið mikið lof fyrir flutning sinn og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2019 sem flytjandi ársins (hópar) í flokknum Sígild og samtímatónlist. Einnig var Elja útnefnd listhópur Reykjavíkur árið 2026.

Flytjendur