ÞAU á Hesteyri

ÞAU á Hesteyri

Ísafjörður-Hesteyri, 401 Ísafjarðarbær, Ísland, Kort

sun. 26.07.2026 14:00

(English Below)

Hljómsveitin ÞAU heldur einstaka tónleika á Hesteyri í júlí!

🗓 Sunnudaginn 26. júlí

🕘 Kl. 14:00 - 19:45

🎟️ Miðasala hefst innan skamms.

Boðið verður upp á tónleikaferð frá Ísafirði þar sem siglt er yfir á Hesteyri, gestir fá tíma til að njóta staðarins, þiggja veitingar í Læknishúsinu og ljúka deginum með tónleikum í mögnuðu umhverfi Hornstranda.

ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk Björnsdóttir og gítar- og trommuleikarinn Garðar Borgþórsson.

Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim, þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla rýmið af tónlist.

ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hafa hlotið góðar viðtökur, og vinna nú að sinni þriðju plötu, ÞAU taka Suðurland. Sveitin verður á tónleikaferðalagi í sumar og hlakkar mikið til að mæta á Hesteyri með tónlistina sína.

Dagskrá

14:00 Siglt frá Ísafirði

15:15 Komið á Hesteyri

15:15 - 16:00 Gestir skoða Hesteyri og njóta staðarins

16:00 - 16:30 Veitingar í Læknishúsinu

16:30 Tónleikar hefjast

18:00 Tónleikum lýkur

18:15 Gestir ganga til báts

18:30 Brottför frá Hesteyri

19:45 Komið til Ísafjarðar

🌻🌻🌻🌻🌻

ÞAU á miðlunum:

Spotify: https://open.spotify.com/artist/6Ct50lb1SYNbNs1JEPDGcJ...

EPK / Heimasíða: https://www.rakelbjork.com/thau-music

Facebook: https://www.facebook.com/thaucompany

Instagram: https://www.instagram.com/thau.company/

🌻🌻🌻🌻🌻

(English)

ÞAU in Hesteyri

Flytjendur

  • ÞAU
    ÞAU

    Hljómsveitin Þau er samstarfsverkefni listafólksins og hjónakornanna Rakelar Bjarkar Björnsdóttur og Garðars Borgþórssonar. Tvíeykið hefur þegar gefið út tvær plötur, ,,Þau taka Vestfirði” og ,,Þau taka Norðurland” og haldið fjölda tónleika. Um er að ræða tónlist sem samin er við ljóð skálda annars vegar frá Vestfjörðum og hins vegar frá Norðurlandi.