40 ára afmælishátíð Samtaka tungumálakennara á Íslandi
Veröld - hús Vigdísar, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavík Kort
lau 26. sep 2026 14:45
Á Evrópska tungumáladeginum ætlar STÍL að blása til 40 ára afmælishátíðar í Veröld og fagna fortíð, nútíð og framtíð samtakanna. Boðið verður upp á nokkur erindi en aðalfyrirlesarinn er Mia Smith, formaður samtaka tungumálakennara í Svíþjóð. Hún mun segja okkur frá stöðu og stefnu Svíþjóðar í tungumálanámi. Auk þess fáum við tónlistarmann til að skemmta okkur og fjörugan kynni sem mun einnig gleðja okkur með uppistandi og stuði. Á eftir formlegum erindum verður boðið upp á veglegar afmælisveitingar.
SJÁ DAGSKRÁ Í ATHUGASEMD
Viðburðurinn er gestum að kostnaðarlausu en hann er styrktur af Mennta- og barnamálaráðuneytinu og Kennarasambandi Íslands. Aðrir samstarfsaðilar eru Rannís, Vigdísarstofnun og Tungumálamiðstöð Háskóla íslands.
Í tilefni af 40 ára afmælinu er einnig gefin út hátíðarútgáfa af tímaritinu Málfríði.
Skráning hér: https://forms.cloud.microsoft/e/CVr28cKP7T