Ljóðasamkeppni Hinsegin daga 2026 // Reykjavík Pride 2026 Poetry Competition

Ljóðasamkeppni Hinsegin daga 2026 // Reykjavík Pride 2026 Poetry Competition

Online event, , Kort

mán. 27.07.2026 23:45

Ljóðasamkeppni Hinsegin daga 2026

Kæru skáld! Það styttist í Hinsegin daga og hin sívinsæla ljóðasamkeppni verður að sjálfsögðu á sínum stað. Síðustu ár hafa stórkostleg skáld stigið fram og verk þeirra vakið verðskuldaða athygli. Við hvetjum öll til þátttöku, hvort sem um er að ræða atvinnuskáld eða þau sem hingað til hafa eingöngu skrifað fyrir skúffuna. Dómnefnd skipa þau Anton Helgi Jónsson, Anna Rós Árnadóttir og Ásdís Óladóttir. Dómnefnd fær ljóðin í hendur ómerkt og órekjanleg til skáldanna. Ljóðin mega vera á hvaða tungumáli sem er en ekki er ábyrgst að dómnefnd skilji öll tungumál heimsins.

Sendið ykkar allra bestu ljóð á netfangið huslestrar@gmail.com fyrir 27. júlí. Úrslit verða tilkynnt þann 6. ágúst.

***

Flytjendur