Útkall - Leiksýning: Flugslysið á Sri Lanka

Útkall - Leiksýning: Flugslysið á Sri Lanka

Harpa | Kaldalón, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

fim. 17.12.2026 20:00

ISK 8900.00
Miðar / Skráning
ISK 8900.00
Miðar / Skráning

Einn vinsælasti bókaflokkur Íslands verður að leiksýningu.

Einn myrkasti kafli í íslenskri flugsögu.

Þann 15. nóvember 1978 brotlenti flugvél Flugleiða, Leifur Eiríksson, við flugvöllinn í Kólombó á Sri Lanka. Af þeim 262 manns sem voru um borð komust einungis 79 lífs af, sem gerði brotlendinguna að fjórða mesta flugslysi sögunnar á þeim tíma. Af þeim sem komust af voru fimm Íslendingar.

Aðdraganda slyssins, björgunaraðgerðunum og eftirmálunum hafa verið gerð skil í bók Óttars Sveinssonar, Útkall - Leifur Eiríksson brotlendir. Bókin byggir á viðtölum við eftirlifendur slyssins, aðstandendur og aðra flugáhafnarstarfsmenn sem voru á flugvellinum þegar brotlendingin átti sér stað. Nú verður sagan að leiksýningu þar sem fimm leikarar munu setja sig í spor íslensku eftirlifendanna og gera sögu þeirra skil á heiðarlegan, nærgætinn en átakanlegan hátt.

Ef það er eitt sem áföll eins og flugslysið á Sri Lanka hafa sýnt okkur, er að á sorgarstundum eiga Íslendingar eina sál þegar á reynir. Þá eykst samlyndi og styrkur eflist.

Leikgerðin er unnin af Fjölni Gíslasyni, leikara og Magnúsi Thorlacius, leikstjóra. Fjölnir hefur verið áberandi í leikhússenunni síðustu ár en hann hefur farið með eftirminnkileg hlutverk m.a. í Kannibalen, Undir, Carmen og í Jónsmessunæturdraumi, svo fátt eitt sé nefnt. Magnús hefur einnig sett mark sitt á leikhússenuna síðustu ár, og lýkur meistaranámi í leikstjórn við LAMDA í London núna í haust. Hann hlaut töluverða athygli fyrir leiksýninguna Skeljar sem sýnd var í Ásmundarsal þarsíðasta vetur sem var tilnefnd til Grímunnar sem leikrit ársins og hefur nú verið gefin út á bók.



Leikstjórn: Magnús Thorlacius

Leikgerð: Fjölnir Gíslason og Magnús Thorlacius

Byggt á bók eftir: Óttar Sveinsson

Leikarar: Berglind Halla Elísdóttir, Fjölnir Gíslason, Kristín Eiríksdóttir og Ellen Margrét Bæhrenz

Ljósahönnun: Fjölnir Gíslason og Magnús Thorlacius

Framleiðsla: SPOTLIGHT


Flytjendur