Prjónað með frjálsri aðferð
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Kort
þri. 22.09.2026 12:15
Leslie Meyer er hannyrða-listakona frá Seattle í Bandaríkjunum.
Hún er þessa dagana að vinna að seríu af prjónuðum verkum sem eru innblásin af ferðalögum hennar um Ísland og hinu norræna landslagi.
Hún notar íslenska ull og prjónar með frjálsri aðferð, án uppskriftar og ákveððins munsturs. Hún nýtir minningar og ljósmyndir í staðinn til að koma til skila íslenskri náttúru í verkum sínum.
Leslie mun segja frá verkum sínum og aðferð sinni í hádegiserindi á aðalsafni.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.