Barrio 27

Barrio 27

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 15:15

Sjóðheitir salsatónar með Barrio 27 í Hörpu á Menningarnótt.

Barrio 27 er sextán manna salsasveit sem hefur vakið athygli fyrir kraftmikinn tónlistarflutning, líflega sviðsframkomu og dansvæna og fjöruga efnisskrá frá Kúbu, Puerto Rico, Kólumbíu og víðar.

Barrio 27 vakti mikla hrifningu á Jazzhátíð Reykjavíkur 2025 og hlaut lofsamlega dóma í tónlistarmiðlunum Jazz in Europe og All About Jazz. Slagverksleikarinn Alexandra Rós Norðkvist er stofnandi sveitarinnar en hún stundar nú nám við Codarts í Hollandi þar sem hún sérhæfir sig í tónlist frá Karíbahafseyjum og Suður-Ameríku.

Markmið Barrio 27 er meðal annars að efla dansmenningu á Íslandi. Hér gefst því einstakt tækifæri til að njóta frábærrar tónlistar og stíga um leið sjóðheitan dans.

Sveitina skipa:
Alexandra Rós Norðkvist, timbales og hljómsveitarstjórn
Alexander Grybos, gítar
Benedikt Gylfason, söngur
Elvar Bragi Kristjónsson, trompet
Hugrún Elfa Sigurðardóttir, básúna og flauta
Jóhannes Guðjónsson, píanó
Magnús Trygvason Eliassen, congur
Ólafur Ingi Finsen, trompet
Rosalía Hanna Canales Cederborg, söngur
Samúel J. Samúelsson, básúna
Símon Karl Sigurðarson Melsteð, söngur og slagverk
Snorri Skúlason, bassi
Sólveig Morávek, saxófónn og flauta
Þorsteinn Jónsson, bongó

Flytjendur