Tónleikarnir Mæðramáttur eru helgaðir mæðrum, móðurhlutverkinu og þeim fjölmörgu þráðum sem það spannar.
Á efnisskránni eru einsöngsljóð og dúettar sem varpa ljósi á hinn hlýja og verndandi móðurfaðm, vaggandi róminn og þær margbreytilegu tilfinningar sem bærast um í móðurhjartanu.
Þar mætast umhyggja, mildi og stolt, en einnig ákefð, ótti, þreyta og jafnvel reiði. Einnig fær sterk rödd konunnar sjálfrar hljómgrunn, langanir hennar og lífskraftur handan þeirra hlutverka sem hún gegnir fyrir aðra.
Þessi þemu eru samofin söngvum um vorið, sem frá fornu fari hefur verið tákn frjósemi, endurnýjunar og nýs upphafs. Tónleikarnir eru óður til móðurástarinnar og lífs sem vex og dafnar, líkt og vorið í náttúrunni.
Mæðramáttur - Seigla 2026
Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
sun. 09.08.2026 17:00
ISK 4500.00
Miðar / Skráning
ISK 4500.00
Miðar / Skráning
ISK 4500.00
Miðar / Skráning
ISK 4500.00
Miðar / Skráning
ISK 4500.00
Miðar / Skráning
Flytjendur
-
Seigla
Tónlistarhátíðin Seigla
-
Vera Hjördís Matsdóttirsópransöngkona
-
Hildigunnur EinarsdóttirEinsöngvari