Helgi Björns & Reiðmenn vindanna
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
lau. 17.10.2026 21:00
Í yfir 40 ár hefur Helgi Björns sungið með þjóðinni.
Lög hans lifa með okkur. Í gleði og gráti, í söknuði og sælu, í dansi og á dimmum dögum.
Nú stíga Helgi Björns og Reiðmenn vindanna á stokk í Eldborg, ásamt sérstökum gestum, með tónleika sem fanga þennan sönglagaarf. Þetta eru lögin sem við eigum saman og höfum sungið kynslóð fram af kynslóð.
🐴 Við þekkjum augnablikið þegar þú komst í hlaðið á hvítum hesti.
🐴 Við munum þegar vor var í augum þér.
🐴 Við höfum riðið sem vindurinn, staðið í stormi og sungið okkur í gegnum myrkur og ljós.
Þetta kvöld verður eins konar ferðalag minninganna þar sem við upplifum kraft og hlýju, rokk og rómantík, sögur og samhljóm.
Að hætti Reiðmanna, sem er hljómsveit í toppformi, verður stemningin lifandi, einlæg og full af orku - þar sem salurinn syngur með.
Þetta verða meira en bara tónleikar. Þetta verður kvöld þar sem minningar lifna við og nýjar verða til.
Tryggðu þér miða í tíma, þar sem Eldborg fyllist hratt þegar vindar rísa.
Flytjendur
-
Helgi BjörnsIcelandic musician celebrating 40 years in the industry
-
Reiðmenn Vindanna
Dansleikur
-
Helgi Björns og Reiðmenn Vindanna
Helgi Björns flytur úrval dægur- og hestalaga sem ásamt hljómsveitinni Reiðmenn vindanna.