Í gleðinni | Harpa býður heim

Í gleðinni | Harpa býður heim

Harpa | Norðurljós, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort

lau. 22.08.2026 15:00

Kammerkórinn Huldur kemur fram í Norðurljósum á Menningarnótt og flytur undurfallega efnisskrá sem fléttast saman af íslenskum kórperlum, glænýjum og sígildum í bland. Stjórnandi er Hreiðar Ingi Þorsteinsson.

Huldur hefur starfað frá árinu 2021 og verið dýrmætur vettvangur fyrir nýsköpun en kórinn hefur frumflutt tugi nýrra verka eftir meðlimi kórsins frá því hann var stofnaður. Kórinn hefur komið fram á tónleikum og hátíðum svo sem Hátíðni á Borðeyri, Seiglu, Óperudögum og Ungkórahátíð Evrópu í Basel. Kórinn sendi nýverið frá sér geisladiskinn Í fossgljúfri sem er fyrsti hljómdiskur kórsins.

Huldur dregur nafn sitt af náttúruvætti úr íslenskri þjóðtrú en samkvæmt þjóðsögum býr huldur í fossgljúfrum eða djúpt í hafi og knýr fram öldugang með söng og leik á langspil. Verkin sem kórinn flytur á tónleikunum á Menningarnótt í Hörpu byggja flest á seiðandi textum úr íslenskum þjóðsögum, þjóðvísum og sagnaheimi.

Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við tónlistarhátíðina Myrka músíkdaga.

Flytjendur