Stórsveitarsveifla með Kristjönu og Stórsveitinni | Harpa býður heim
Harpa | Silfurberg, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort
lau. 22.08.2026 17:15
Stórsveit Reykjavíkur og jazzdívan Kristjana Stefánsdóttir bjóða upp á ómótstæðilega stórsveitarsveiflu í Silfurbergi á Menningarnótt. Dansvæn og grípandi lög hljóma í frábærum flutningi undir stjórn Sigurðar Flosasonar. Komið, njótið og sveiflið ykkur með.
Stórsveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1992 og er fjölmennasti tónlistarhópur landsins í heimi rytmískrar tónlistar. Verkefnaval hennar er víðfeðmt en hún flytur jöfnum höndum nýja og framsækna íslenska og erlenda
tónlist í bland við vinsæl, eldri verk með mörgum af þekktustu söngvurum þjóðarinnar. Stórsveitin býður einnig árlega upp á tónleika sem eru sniðnir fyrir börn og fjölskyldur sem og stórsveitarmaraþon en þar koma saman allar stórsveitir landsins landsins, ungar sem aldnar.
Stórsveit Reykjavíkur hefur átt heimili í Hörpu frá árinu 2012 og gengst árlega fyrir fjölbreyttu og metnaðarfullu tónleikahaldi í húsinu.