Ummyndlingar

Ummyndlingar

Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland, Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík Kort

þri. 28.07.2026 10:00

Opnun 30. maí kl. 18:00
Á hálfrar aldar ferli hefur Björk Guðmundsdóttir verið óþreytandi við að þenja hefðbundin mörk tónlistarformsins og í stöðugum tilraunum sínum ofið saman listum, náttúru og tækni.
Þrjár innsetningar veita gestum einstakt
tækifæri til að upplifa alltumlykjandi verk sem búa yfir kynngimagnaðri hljóðrænni, sjónrænni og tilfinningalegri dýpt. Tvö þeirra eru tregaljóð, samin og útsett af Björk í minningu móður hennar, og hið þriðja er nýtt verk af væntanlegri plötu Bjarkar.
Í Ancestress er tekist á við hringrás lífsins. Í afskekktum dal birtist okkur eins konar helgiganga tónlistarfólks og dansara. Verkið var samið og útsett af Björk fyrir strengjasveit og slagverk.
Hið pólýfóníska þriggja-kóra-verk Sorrowful Soil er sálumessa þar sem kanón-legar laglínur veltast um á milli radda. Úr þrjátíu hátölörum berast einstaka raddir meðlima Hamrahlíðarkórsins, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Verkið var samið og útsett af Björk fyrir níu radda kór.
Samhliða sýningu Bjarkar stendur yfir sýning James Merry í sal 4, Ummyndlingar, en tvíeykið hefur unnið náið saman í fjölda ára.

Listamaður:
Björk
Sýningarstjóri:
Pari Stave
Framleitt af Listasafn Íslands
Stutt af Genelec

Flytjendur

  • Björk
    Björk

    Björk Guðmundsdóttir is a prolific singer, songwriter, producer, musician and actress who has been involved in music since the age of eleven. After becoming famous in Iceland for her renditions of songs by such artists as Tina Charles and The Beatles she joined a string of Icelandic rock bands: Tappi Tíkarrass, KUKL and The Sugarcubes, the last of which gained a popular following outside Iceland.

    Her solo work since 1991 spans the genres of rock, dance, electronic, jazz, ambient, trip-hop and classical.

    She is known for her avantgarde persona, her musical experimentation and sophistication, and her collaborations with many musicians, including 808 State, Thom Yorke, Tricky, Plaid, Matmos, Mark Bell, Hilmar Örn Hilmarsson (HÖH) of Psychic TV, and David Tibet of Current 93.