Drauma­landið - Karla­kórinn Fóst­bræður | Harpa býður heim

Drauma­landið - Karla­kórinn Fóst­bræður | Harpa býður heim

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 17:00

Karlakórinn Fóstbræður kemur fram á tónleikum í Norðurljósum
á Menningarnótt. Á efnisskrá eru sígildar kórperlur í bland við ástsæl dægurlög úr öllum áttum. Söngstjóri er Árni Harðarson.
Karlakórinn Fóstbræður hefur starfað samfellt frá haustinu
1916 og fagnar því 110 ára afmæli sínu um þessar mundir. Kórinn hefur um langt skeið verið einn
eftirsóttasti og virtasti sönghópur landsins og komið fram við fjölbreytt tilefni, opinberar athafnir, hátíðir og menningarviðburði. Hann hefur pantað og frumflutt fjölmörg ný tónverk, margsinnis komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, haldið í tónleikaferðalög víða um heim og sent frá sér rómaðar plötur.Vortónleikar Fóstbræðra hafa verið haldnir í Norðurljósum í Hörpu allt frá opnun hússins. Píanóleikari með kórnum er Steinunn Birna Ragnarsdóttir.

Flytjendur