Visita guiada: Hugo Llanes sobre National Happiness de Jeremy Deller

Visita guiada: Hugo Llanes sobre National Happiness de Jeremy Deller

Gerðarsafn Kópavogur Art Museum, Hamraborg 4-6, 200 Kópavogur Kort

lau. 25.07.2026 15:00

Vertu velkomin í leiðsögn á spænsku um sýninguna Landlæg hamingja eftir Jeremy Deller, sem verður leidd af listamanninum Hugo Llanes. Llanes er fæddur í Mexíkó og búsettur í Reykjavík. Hann hefur tekið virkan þátt í verkefnum sem stuðla að inngildingu og þátttöku, meðal annars Komd’inn, AIVAG og Get Together (GETA).

Í kjarna listsköpunar Jeremy Dellers er löngun til að skapa tengingar. Til að sýna samfélag okkar og þær marglaga flækjur sem hlykkjast um það með töframætti myndlistar. Sýningin skiptist í tvo sali, annars vegar er vídeóinnsetningin Triumph of Art (2026), sem er frumsýnd á Íslandi og unnin í samstarfi við leikara, listafólk, tónlistarfólk, dansara, vaxtarræktarfólk og sundballerínur víðs vegar að úr Bretlandi. Vestursalurinn ber titilinn Warning Graphic Content (1993–2026), þar má sjá verk sem spanna meira en þrjátíu ára listferil Dellers.

Deller hlaut Turner-verðlaunin árið 2004 og er einn af fremstu samtímalistamönnum Bretlands. Samstarf og þátttaka almennings eru í kjarna listsköpunar hans.