Áttan var stofnuð sumarið 2014 af þeim Agli Ploder, Nökkva Fjalari og Róberti Úlfarssyni. Þetta ævintýri hófst allt á Vísir.is og færði sig þaðan yfir á mbl.is. Eftir að hafa verið á tveimur stærstu vefmiðlum Íslands færði Áttan sig alfarið á samfélagsmiðlana og stofnaði sitt eigið félag í kringum merkið í janúar 2016. Þar markaði merkið tímamót þar sem félagið er fyrsta félagið sem aflaði eingöngu tekjur sínar á samfélagsmiðlum. Áttan bætti við sig skemmtilegum vinkli í maí 2017 þegar merkið opnaði sína eigin útvarpsstöð, Áttan FM. Áttan FM sérhæfir sig í að spila allt það nýjasta ásamt því að reyna að styðja við íslenska tónlist eftir fremsta megni. Áttan skptist niður í þrjár deildir, ÁttanFM, ÁttanTV og attan.is. ÁttanTV sér um að búa til afþreyingu á samfélagsmiðlunum og attan.is bræðir efni merkisins saman. Framtíðar markmið Áttunnar er að vaxa og dafna og að koma ungu fólki á öllum aldri á framfæri í gegnum sína miðla.